
Vinsamlegast svarið spurningalistanum "Heil og sæl í vinnunni" sem er hluti af samevrópsku verkefni um heilsueflingu og forvarnir á vinnustað og finnið út hvernig hægt sé að bæta stjórnun heilsueflingar á vinnustaðnum! Það mun aðeins taka u.þ.b. 15 mínútur að komast að því hvort heilsuefling sé hluti af stefnu og menningu á vinnustað ykkar. Með því að svara spurningalistanum getið þið kynnt ykkur hvort stefnur og starfsemi er varða heilsueflingu séu til staðar innan fyrirtækis ykkar eða stofnunar og metið þá heilsueflingu sem fram fer.
Í spurningalistanum er sjónum beint að fjórum þáttum: tóbaksvörnum, hreyfingu, næringu og andlegri heilsueflingu. Hverri spurningu skal svarað játandi (JÁ) eða neitandi (NEI). Til þess að þátttakan sé fullgild þarf að svara ÖLLUM spurningunum. Eftir að hafa svarað spurningalistanum fáið þið senda endurgjöf í tölvupósti. Þessi endurgjöf inniheldur ráðleggingar og mögulegar hugmyndir um hvernig megi bæta og auka heilsueflingu á vinnustaðnum ykkar.